140. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2011.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[17:33]
Horfa

Davíð Stefánsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er beint til mín mörgum mikilvægum spurningum. Ég sagði áðan að ég hefði ekki svör við þeim öllum. Það er einmitt af þessari ástæðu sem mig langar til að ræða þessi mál af yfirvegun. Sú umræða fer ekki fram hér. Ég veit ekki öll svörin. Hér fer fram leikur sem snýst um það að koma höggi á andstæðing mögulega vegna þess að ég veit ekki öll svörin.

Ég skal ræða þessi mál af yfirvegun hvenær sem er en ekki með þessum hætti.