140. löggjafarþing — 9. fundur, 17. okt. 2011.
jafnréttismál.
Virðulegi forseti. Ég hef margrætt þetta mál úr þessum ræðustól, m.a. vegna ítrekaðra fyrirspurna frá þessum hv. fyrirspyrjanda. Staða málsins er sú að ég leitaði sátta í þessu máli og það tókst ekki þannig að kærandinn ákvað að höfða skaðabótamál fyrir dómstólunum. Þannig er staðan núna.