140. löggjafarþing — 13. fundur,  20. okt. 2011.

matvæli.

138. mál
[11:44]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli. Núgildandi lög fela í sér að einstaklingar eða félagasamtök sem matreiða og bjóða matvæli án endurgjalds eða til sölu í þágu góðgerðarmála eru matvælafyrirtæki í skilningi laganna. Jafnframt eru þessir aðilar starfsleyfisskyldir samkvæmt 9. gr. laganna.

Kröfur um breytingar á framangreindu fyrirkomulagi hafa orðið háværari hin síðari ár og í þá veru að félagasamtök eða einstaklingar hefðu möguleika á að leggja ýmsum málefnum lið með því að bjóða almenningi gegn gjaldi matvæli sem framreidd eru eða bökuð í eldhúsum heima við eða öðrum eldhúsum sem ekki hafa verið samþykkt af opinberum eftirlitsaðilum. Með frumvarpi þessu er komið til móts við framangreindar kröfur almennings. Í frumvarpinu er því lagt til að gildissvið laga nr. 93/1995 verði þrengt. Þannig gildi lögin ekki um einstaklinga eða félagasamtök sem útbúa og bjóða til sölu matvæli beint til neytenda í þágu góðgerðarmála en stunda slíka starfsemi ekki að jafnaði eða í eigin hagnaðarskyni. Samkvæmt frumvarpinu er góðgerðarstarfsemi skilgreind þannig að um sé að ræða starfsemi sem hafi það einasta markmið að verja hagnaði sínum til almenningsheilla, svo sem líknarmála, íþróttamála, félagsmála og vísinda- eða hjálparstarfsemi.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hversu algengt er að einstaklingar eða félagasamtök matreiði og bjóði matvæli án endurgjalds eða til sölu í þágu góðgerðarmála. Þar sem slík matreiðsla hefur alla jafna ekki verið tilkynnt til opinberra eftirlitsaðila má ætla að opinbert eftirlit á þessu sviði hafi ekki verið skilvirkt. Í seinni tíð hefur borið á því að matvælafyrirtæki hafi vakið athygli opinberra eftirlitsaðila á tilteknum viðburðum þar sem matvæli hafa verið boðin til sölu í þágu góðgerðarmála. Í slíkum tilvikum hafa opinberir eftirlitsaðilar brugðist við og vakið athygli á kröfum löggjafarinnar.

Um fá tilvik er að ræða og í ljósi þessa má ætla að efnisákvæði frumvarpsins muni ekki breyta núverandi ástandi í samfélaginu hvað varðar framboð matvæla sem útbúin eru af einstaklingum eða samtökum í þágu góðgerðarmála.

Jafnframt er hér kveðið skýrt á um það með frumvarpi þessu að einstaklingar eða félagasamtök sem matreiða og bjóða matvæli án endurgjalds til neytenda við einstök tilefni falli utan við gildissvið laganna. Þannig er gert ráð fyrir að kaffisamsæti ýmiss konar í kirkjum, skólum og sambærilegum mannfögnuðum, þar með talið ýmiss konar útiviðburðum, þar sem einstaklingar eða félög matreiða og bjóða án endurgjalds matvæli til neyslu falli utan gildissviðs laganna. Með þessu ákvæði eru tekin af öll tvímæli um að slík eldamennska eða bakstur falli ekki undir opinbert matvælaeftirlit samkvæmt lögum eins og verið hefur.

Í frumvarpi þessu er einnig gert ráð fyrir að ráðherra fái heimild til að víkja frá einstökum ákvæðum matvælalaganna þegar um er að ræða frumframleiðendur sem afhenda frumframleiðsluvörur í litlu magni beint til neytenda eða til staðbundins smásölufyrirtækis sem afhendir matvæli beint til neytenda. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð þar sem nánari ákvæði um slíka starfsemi eru sett og mögulega vikið frá einstökum ákvæðum laga nr. 93/1995.

Bændur og aðrir aðilar sem til dæmis stunda veiði eða nýta villigróður ýmiss konar hafa í auknum mæli hafið sölu á afurðum sínum frá býli sínu eða á nálægum mörkuðum. Í þeim tilvikum og öðrum þar sem slíkir aðilar afhenda vöru sína nálægt smásölufyrirtæki hefur meðal annars verið litið til þess að neytandinn sé í beinu sambandi við framleiðanda vörunnar eða sé upplýstur um uppruna vörunnar og meðferð hennar.

Ráðherra mun með reglugerð skilgreina nánari skilyrði fyrir þessa starfsemi, svo sem um hvaða starfsemi er að ræða og hvað telst staðbundin starfsemi. Gera má ráð fyrir að heimild ráðherra til að víkja frá ákvæðum laganna muni fjölga þeim aðilum sem hefja framangreinda starfsemi.

Með sama hætti er gert ráð fyrir að ráðherra geti vikið frá ákvæðum laganna þannig að áfram verði hægt að beita ýmsum hefðbundnum aðferðum við matvælavinnslu hérlendis. Hér getur verið um að ræða vinnslu ýmissa matvæla þar sem vinnsluaðferðin uppfyllir ekki almenn ákvæði laganna eða reglugerða sem settar eru á grundvelli laganna. Um margvíslega vinnslu getur verið að ræða, svo sem reykingu á kjöti með taði og vinnslu á hákarli og fiski svo nokkuð sé nefnt. Vinnsluaðferðir sem þessar hafa verið stundaðar um aldir og þrátt fyrir að vera ekki í samræmi við ákvæði núgildandi laga og reglugerða uppfylla þessar vinnsluaðferðir þær kröfur sem almennt eru gerðar til öryggis slíkra matvæla.

Virðulegi forseti. Í kostnaðarumsögn með þessu frumvarpi af hálfu fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins segir, með leyfi forseta:

„Markmið frumvarpsins er fyrst og fremst að auðvelda einstaklingum og félagasamtökum matvæla- og veitingasölu í góðgerðarskyni og til almannaheilla. Einnig er frumvarpinu ætlað að auðvelda og viðhalda framleiðslu matvæla með aldagömlum íslenskum framleiðsluaðferðum og stuðla að fjölbreytileika í matvælaframleiðslu.

Breytingarnar varða fyrst og fremst aðbúnað og hollustuhætti í matvælaiðnaði og ekki verður séð að lögleiðing frumvarpsins hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs.“

Frú forseti. Ég tel mjög mikilvægt að þetta mál fái sem greiðasta leið í gegnum þingið. Við stöndum frammi fyrir árstíma þar sem mikið er um að félög og samtök á því sviði sem hér eru tilgreind halda samkomur og selja heimaunnar vörur í góðgerðarskyni, ekki hvað síst í aðdraganda jólanna. Það er mikil hvatning frá þeim félagasamtökum sem eiga mörg hver hlut að máli, hafa stundað þetta áratugum saman og óska eftir að fá áfram heimild til þess. Í þeim tilgangi er þetta frumvarp einmitt flutt.