140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Eins og tilkynnt var á vef þingsins 31. október barst bréf frá Ásbirni Óttarssyni, 1. þm. Norðvest., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Í gær tók sæti á Alþingi Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.