Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 15. fundur,  1. nóv. 2011.

flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.

19. mál
[16:11]
Hlusta - Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Það vekur athygli mína við þetta þingmál að það er sama þingmálið og var flutt í fyrra. Ég man ekki hvenær það var en ég man eftir þeirri umræðu. Í henni tóku þátt einmitt hv. flutningsmaður nú, Oddný G. Harðardóttir, og Mörður Árnason sem hér stendur, og þar að auki hv. þingmenn Ragnheiður E. Árnadóttir og Birgir Ármannsson. Það voru þessir fjórir sem töluðu um málið nokkra stund að kvöldi eða a.m.k. seint um dag.

Það sem vekur athygli mína er að málið er nú alveg eins og það var á fyrra þingi. Ég hef að vísu ekki borið greinargerðina saman orð fyrir orð en efnislega er það nákvæmlega eins og mætti þá ætla að ekkert hefði gerst í málinu síðan. Og vegna þess að ég tel að það hafi verið vil ég spyrja hv. þingmann hvort flutningsmennirnir tíu, þingmenn Suðurkjördæmis allir, hafi ekki kynnt sér minnisblað frá 14. apríl 2011 sem er á vef innanríkisráðuneytisins og heitir „Hagkvæmniathugun vegna flutnings starfsemi Landhelgisgæslu Íslands til Suðurnesja“, þar sem niðurstaðan er sú að flutningskostnaður sé um 450 milljónir og rekstrarkostnaður, ef ég les þetta rétt, aukist við flutninginn á ári um 690 milljónir, eða 26%. Ef flutningsmenn hafa kynnt sér þetta hvers vegna minnast þeir ekki á það í greinargerðinni og þeirri framsöguræðu sem hér var vissulega ágætlega flutt?

Næsta ræða