staðan í aðildarferlinu við ESB.
Virðuleg forseti. Ég tala hér í nokkrum punktum.
1. Nýliðinn landsfundur VG talaði mjög skýrt í þessum málum og brýndi okkur, fulltrúa flokksins, til að standa betur vaktina í þessum efnum og gera öllum ljóst að VG er á móti Evrópusambandsaðild og ætlar sér að vakta vel það ferli sem við stöndum í og standa þar mjög skýrt á hagsmunum Íslands.
2. Umboðið sem Alþingi gaf til þessa ferlis er skilyrt, eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Ábyrgð okkar þingmanna er því mjög mikil í þessu ferli öllu. Aðkoma þingsins á að vera virk og öflug og gagnsæ, og ég leyfi mér að segja að þar þurfum við verulega að spýta í lófana. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
3. Allt tal um að flýta eigi sérstaklega því sem kallað er mikilvægu köflunum, þá eru sérstaklega nefndir sjávarútvegs- og landbúnaðarkaflarnir, á sér ekki innstæðu í raunveruleikanum. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þetta ferli er ekki einhliða á okkar valdi, heldur miklu fremur einhliða á valdi ESB. Það vill svo til að ESB er ekki og verður ekki um nokkurn tíma sjálft tilbúið að opna til dæmis kaflann um sjávarútvegsmál. Það eru þeir sem stýra ferðinni í þessum efnum mun frekar en við. Tal um að flýta samningum eða ljúka þeim á eins skömmum tíma og hægt er er hreinlega, leyfi ég mér að segja, út í loftið.
4. Ég vara líka við þeirri almennu hugsun að einhverjir tilteknir tveir, þrír kaflar séu mikilvægu kaflarnir. Við verðum að gera okkur grein fyrir að það eru margir kaflar í þessu ferli mjög mikilvægir og þá þarf að vakta jafn vel.
5. Því sjónarmiði hefur verið hreyft að jafnvel þótt þjóðin mundi hafna hugsanlegum aðildarsamningi hafi samningsstaða Íslands á alþjóðlegum vettvangi veikst við þetta ferli því að þar eru íslensk stjórnvöld að gefa frá sér ýmis mál sem þau að öðru jöfnu mundu ekki gera ef þau væru ekki í þessu ferli. Þetta þarf að skoða vel og ræða opinskátt. (Forseti hringir.)
6. Þetta kostnaðarsama, flókna og mannfreka, tímafreka ferli hefur verið varið af lýðræðisást. Þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Vill hann þá ekki, af lýðræðisást, og vilja hv. þingmenn ekki þá samhljóma og einróma (Forseti hringir.) styðja þjóðaratkvæði um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, sem kostar ekki það tímafreka, kostnaðarmikla eða mannfreka ferli sem við erum í nú?