140. löggjafarþing — 18. fundur,  8. nóv. 2011.

hlutafélög og einkahlutafélög.

191. mál
[19:14]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög á þskj. 195.

Frumvarp þetta, sem samið er í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, er endurflutt með litlum breytingum frá síðasta þingi en hlaut ekki afgreiðslu þá. Það felur í sér innleiðingu á tilskipun 109/2009 sem breytir fjórum tilskipunum á sviði félagaréttar samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Snerta breytingarnar samruna á skiptingu hlutafélaga og einkahlutafélaga. Þingsályktunartillaga af hálfu utanríkisráðherra sem geymir þýðingu á texta tilskipunarinnar var afgreidd á 139. löggjafarþingi.

Aðalmarkmiðið með tilskipuninni, sem innleiða þarf sem fyrst, er að draga úr stjórnsýslubyrðum í hlutafélögum og einkahlutafélögum en á þeim hvíla ýmsar upplýsingaskyldur. Dregið er úr þeim skyldum við vissar aðstæður hvað snertir gerð skýrslna og skjala og birtingu þeirra. Þá er aukin heimild til að nýta meðal annars vef félaga.

Í samræmi við þá venju að hafa sem líkastar reglur um samruna og skiptingu hlutafélaga sem einkahlutafélaga eru nú bæði lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um hlutafélög og laganna um einkahlutafélög.

Í inngangi að tilskipuninni er meðal annars greint frá því að í ákveðnum tilvikum megi draga úr upplýsingaskyldum í félögum varðandi skýrslur og skjöl ef allir hluthafar samþykkja. Fyrirhugaðar reglur munu því helst eiga við í hlutafélögum og einkahlutafélögum með fáa hluthafa.

Frumvarpið hefur þegar verið sent til umsagnar ýmissa aðila og vísast nánar um það til athugasemda með frumvarpinu.

Ákvörðun Evrópusambandsins á árinu 2007 sem var grundvöllur þeirrar EES-gerðar sem innleidd er með þessu frumvarpi miðar að því að auka samkeppnishæfni hlutafélaga og einkahlutafélaga án þess þó að slíkt hefði neikvæð áhrif með tilliti til verndar hlutfallsreglna um félögin. Í kostnaðarmati kemur fram að frumvarpið mun ekki hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð verði það lögfest óbreytt.

Ég legg til, virðulegi forseti, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til efnahags- og viðskiptanefndar.