140. löggjafarþing — 18. fundur,  8. nóv. 2011.

Bankasýsla ríkisins.

229. mál
[19:18]
Horfa

Flm. (Margrét Tryggvadóttir) (Hr):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009. Auk mín eru flutningsmenn þingmennirnir Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Lilja Mósesdóttir.

Þetta er einfalt frumvarp sem lýtur að því að auka kröfur sem gerðar eru til stjórnarmanna og forstjóra í Bankasýslu ríkisins. Í 1. gr. er lagt til að 6. gr. laganna breytist og hljóði svo:

„Stjórnarmenn og forstjóri skulu hafa menntun á háskólastigi og búa yfir víðtækri þekkingu og starfsreynslu á fjármagnsmarkaði. Þeir skulu hafa trausta þekkingu og reynslu af starfsemi fjármálafyrirtækja sem og þekkingu á góðum stjórnarháttum fyrirtækja. Gæta skal þess við skipun stjórnar að starfsreynsla og menntun stjórnarmanna sé sem fjölbreyttust.

Stjórnarmenn og forstjóri skulu vera lögráða. Þeir mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eða hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða þeim sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi.

Stjórnarmenn og forstjóri skulu ekki vera stjórnendur, starfsmenn, endurskoðendur, lögmenn eða tryggingastærðfræðingar aðila sem eru eftirlitsskyldir skv. 2. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Stjórnarmenn og forstjóri skulu ekki taka þátt í meðferð máls sem varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hluti í, sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í. Sama gildir um þátttöku í meðferð máls er varðar aðila sem eru þeim tengdir persónulega eða fjárhagslega. Þá skulu þeir ekki sinna öðrum störfum á fjármálamarkaði í þrjú ár eftir að þeir láta af störfum fyrir Bankasýsluna.

Stjórnarmenn og forstjóri mega ekki hafa sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að draga í efa hæfni þeirra til að sinna þeim verkefnum sem felast í starfsemi Bankasýslu ríkisins. Við mat á hæfni þeirra skal horft til orðspors þeirra úr atvinnulífi og/eða stjórnsýslu.“

Hér er verið að leggja til breytingu á 6. gr. laganna um Bankasýsluna en lögin eru nr. 88/2009 og voru samþykkt á Alþingi 11. ágúst 2009.

Ári síðar gerðum við miklar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Þar settum við m.a. inn hæfisskilyrði í 52. gr. og í ákvæðum sem lúta að orðspori þeirra sem hyggjast auka við eignarhlut sinn eða auka virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum og ég tek svolítið mið af þeim við samningu þessa frumvarps. En þær breytingar sem frumvarpið felur í sér mæla aðallega fyrir um að hæfnisskilyrði forstjóra og stjórnarmanna stofnunarinnar verði gert ítarlegra. Einnig eru lagðar til breytingar sem eiga að reyna að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra sem ég held að sé eitthvað sem við þyrftum að skoða víðar á þessu sviði.