140. löggjafarþing — 20. fundur,  10. nóv. 2011.

umræða um sparisjóði.

[11:16]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti verður við því að hv. þm. Eygló Harðardóttir taki til máls en forseti vill geta þess áður en hv. þingmaður tekur til máls að það er ekki til umræðu hér hvernig forseti raðar inn óundirbúnum fyrirspurnum. (Gripið fram í.) Það er forseti sem ræður því, það er ljóst. Það er ekki til umræðu.