140. löggjafarþing — 20. fundur,  10. nóv. 2011.

fjáraukalög 2011.

97. mál
[12:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að hér er um samgönguáætlun að ræða. Það er líka rétt að það sem ég átti við í máli mínu er að önnur verkefni eru sett framar í forgangsröð. Verkefnið um Vaðlaheiðargöng er byggt á lögum um hlutafélög um vegaframkvæmdir til þess að efla atvinnustig í landinu en er ekki sett inn út frá forgangsröðun samkvæmt samgönguáætlun.