140. löggjafarþing — 24. fundur,  16. nóv. 2011.

samningar um sölu Byrs.

[15:57]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Mér finnst nauðsynlegt að kynna mér þessa samninga. Ég veit ekki einu sinni hvar ég á að nálgast þá. Ég bið hæstv. forseta að fresta málinu svo sem í einn eða tvo tíma. Ég hugsa að það sé sá tími sem ég þarf til að lesa sérstaklega gögn sem eru á ensku. Ég skil reyndar ekki af hverju gögnin eru á ensku. Þetta eru samningar milli tveggja íslenskra aðila, að mér skilst.