140. löggjafarþing — 29. fundur,  30. nóv. 2011.

Landsvirkjun o.fl.

318. mál
[19:44]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir orð hennar hér. Ég hvet ráðherra til að taka þessar hugleiðingar okkar inn í ráðuneyti sitt og fela þar starfsmönnum að velta þeim upp og skoða hvort þetta sé hægt með einhverjum hætti og ræða það þá væntanlega við fjármálaráðherra og innanríkisráðherra í framhaldinu sem koma að þessu máli líka.