140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:20]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Það er með sanni sorglegt að horfa upp á norrænu velferðarstjórnina ekki nota tækifærið og hlífa heilbrigðiskerfinu. Það er sorglegt að þingheimur getur ekki komið sér saman um að finna leiðir til að hlífa heilbrigðiskerfinu.

Ég skoraði á þingheim að finna lausnir sameiginlega á milli 2. og 3. umr. og það voru engir tilburðir gerðir til þess. Það er skömm að því.