140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:39]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Við leggjum einfaldlega til að sóknargjöld til þjóðkirkjunnar verði hækkuð. Þjóðkirkjan hefur þurft að þola skerðingu umfram aðrar stofnanir innanríkisráðuneytisins. Það er algerlega óþolandi, virðulegi forseti, og þess vegna leggjum við til að þjóðkirkjan verði jafnsett öðrum stofnunum innanríkisráðuneytisins.