140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[17:04]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég segi það sama um þessar tillögur og þær tillögur sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram. Þær eru um margt ágætar og okkur framsóknarmönnum líst mjög vel á margt í þeim. Þær eru margar hverjar af sama meiði en útfærslan kannski öðruvísi hjá okkur framsóknarmönnum þannig að við munum að meginstefnu til sitja hjá en greiða atkvæði með þeim liðum sem okkur hugnast.