140. löggjafarþing — 34. fundur,  8. des. 2011.

fjarskiptasjóður.

364. mál
[18:19]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005, með síðari breytingum.

Frumvarpi þessu, ef að lögum verður, er ætlað að framlengja gildistíma fjarskiptasjóðs um fimm ár en samkvæmt núgildandi lögum munu lögin renna úr gildi um áramót.

Fjarskiptasjóður hefur verið starfræktur frá árinu 2005. Fjarskiptasjóður var stofnaður í kjölfarið á sölu á eignarhlut ríkissjóðs í Landssíma Íslands en hluti af söluandvirðinu var látinn renna í sjóðinn til uppbyggingar á sviði fjarskiptamála. Meginhlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar hverju sinni með því að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna sem kveðið er á um í fjarskiptaáætlun og ætla má að ekki verði ráðist í á markaðsforsendum. Það á fyrst og fremst við um uppbyggingu á strjálbýlli svæðum landsins en að jafnaði er til staðar virk samkeppni á fjarskiptamarkaði á þéttbýlli svæðum.

Í fjarskiptaáætlun 2005–2010 var lagður grunnur að mikilvægum verkefnum varðandi uppbyggingu fjarskipta sem komið hefur landinu í fremstu röð ríkja á sviði fjarskipta og upplýsingatækni. Hafði áætlunin að geyma mörg og metnaðarfull markmið og verkefnaáætlun sem hafa sett mikinn svip á þróun og þjónustu á sviði fjarskipta í öllum landshlutum. Sérstök áhersla var lögð á það í fjarskiptaáætlun að bæta fjarskipti þar sem úrbóta var mest þörf, þar á meðal var kveðið á um að öryggi vegfarenda yrði bætt með aukinni farsímaþjónustu á þjóðvegum landsins og helstu ferðamannastöðum og tryggja að öllum landsmönnum stæði til boða að tengjast háhraðaneti og njóta hagkvæmrar og öruggrar fjarskiptaþjónustu óháð búsetu.

Til stendur að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um nýja fjarskiptaáætlun sem ætlað er að gilda til næstu 12 ára. Sú áætlun hefur þegar verið afgreidd úr ríkisstjórn og er væntanleg fyrir þingið á næstu dögum. Ljóst er að ekki verður ráðist í jafnumfangsmikla uppbyggingu og gert var í tíð fjarskiptaáætlunar 2005–2011. Þá vorum við að tala um upphæðir á milli 2 og 3 milljarða. Þrátt fyrir það er mikilvægt að tryggja áframhaldandi framþróun á sviði fjarskipta og styðja við uppbyggingu þar sem slíkt er ekki mögulegt á markaðslegum forsendum.

Í nýrri fjarskiptaáætlun er kveðið á um markmið stjórnvalda sem stefna ber að til að leggja grunn að framþróun íslensks samfélags og skulu þau markmið stuðla að aðgengilegum og greiðum, hagkvæmum og skilvirkum, öruggum og umhverfisvænum fjarskiptum. Þá er lögð áhersla á það í nýrri fjarskiptaáætlun að ná samræmdri forgangsröðun og stefnumótun, og skal forgangsröðunin byggjast á mati á þörf fyrir úrbætur og uppbyggingu á landinu í heild, sem og í einstökum landshlutum.

Meðal meginmarkmiða nýrrar fjarskiptaáætlunar eru áform um að stuðla að háhraðanetsuppbyggingu og öryggi fjarskipta með því að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu á stofnneti, sem ekki verður gert á markaðslegum forsendum, svo að það geti þjónað íbúum á landsbyggðinni á jafnréttisgrundvelli við þéttbýlli svæði. Uppbygging á sviði fjarskipta er lykilþáttur í að skapa forsendur fyrir framþróun og er ný fjarskiptaáætlun og framlengdur líftími fjarskiptasjóðs lykilforsenda fyrir áframhaldandi uppbyggingu.

Ég geri nú nánari grein fyrir nýmælum og breytingum sem felast í frumvarpinu:

1. Líkt og fram hefur komið er lagt til í frumvarpinu að lög um fjarskiptasjóð verði framlengd til næstu fimm ára. Markmið þeirrar breytingar eru bæði að tryggja að fjarskiptasjóður nái að fylgja eftir þeim verkefnum sem eru á lokastigum vegna fyrri fjarskiptaáætlunar, þ.e. háhraðanetsverkefni fjarskiptasjóðs. Auk þess er lagt til að fjarskiptasjóður starfi áfram til þess að fylgja eftir nýrri fjarskiptaáætlun 2011–2022 og stuðla þannig að áframhaldandi uppbyggingu.

2. Til þess að standa straum af kostnaði sjóðsins og uppbyggingu fjarskipta er lagt til það nýmæli að hann verði fjármagnaður af tekjum sem til eru komnar vegna úthlutana á tíðnum vegna fjarskipta sem kveðið er á um í fjarskiptalögum, nr. 81/2003. Fjarskiptatíðnir eru auðlindir undir stjórn íslenska ríkisins en tíðnir eru takmörkuð auðlind og eru umtalsverð verðmæti falin í réttindum til notkunar þeirra. Miklu máli skiptir að við úthlutun þessara gæða sé farið eftir hlutlægum og gagnsæjum sjónarmiðum á grundvelli fyrir fram ákveðinna reglna þannig að sem best verði tryggt að markmiðum um sanngirni og jafnræði sé náð. Að sama skapi þarf úthlutun tíðna að þjóna almannahagsmunum með tilliti til útbreiðslu og aðgengis að fjarskiptaþjónustu um landið allt. Með því að kveða á um að gjöld, sem fjarskiptafyrirtæki greiða fyrir afnot af tíðnum, renni til fjarskiptasjóðs er stoðum skotið undir enn frekari uppbyggingu á sviði fjarskipta þar sem það reynist ekki mögulegt á markaðslegum forsendum notendum, fjarskiptafyrirtækjum og þjóðinni allri til hagsbóta. Óvíst er hversu há tíðnigjöld verða greidd á næstu árum en ljóst að einungis verði um að ræða brot af þeirri upphæð sem var til ráðstöfunar fyrir framkvæmd síðustu áætlunar. Gróflega áætlað má gera ráð fyrir 300 milljónum á næstu árum á móti 2,5 milljörðum eins og ég gat um áðan og vísaði í upphæð á milli 2 og 3 milljarða.

Auk ofangreinds eru lagðar til minni háttar breytingar á lögum um fjarskiptasjóð. Lagt er til að stjórnarmönnum fjarskiptasjóðs verði fækkað úr fimm í þrjá í samræmi við minnkað umfang starfseminnar. Þá er kveðið á um að Ríkisendurskoðun skuli annast árlega endurskoðun reikninga sjóðsins. Hér er með öðrum orðum fyrst og fremst verið að framlengja líf fjarskiptasjóðs sem tækis sem við ætlum að nota til að millifæra fjármuni frá þeim sem njóta góðra fjarskipta til hinna sem ekki njóta góðra fjarskipta. Fjarskiptasjóður hefur unnið ágætt starf og við erum að gera tillögu um að líf hans verði framlengt um að minnsta kosti fimm ár.

Ég legg svo til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgöngunefndar.