140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

304. mál
[11:07]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Í september var ég þingflokksformaður Hreyfingarinnar. Ég vil taka fram að aldrei var samið á þeim vettvangi um að hér yrði afgreitt mál um staðgöngumæðrun eins og þingflokksformaður Framsóknarflokksins hélt fram. Hins vegar veit ég til þess að ákveðið var í heilbrigðisnefnd að málið yrði afgreitt þaðan út. Það bindur ekki hendur þingflokksformanna, og ég frábið mér svona tal.