140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

381. mál
[23:36]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég talaði fyrir þessu máli hér í síðustu viku, þ.e. því að fresta gildistöku þessa ákvæðis til 1. nóvember 2012. Ástæðan fyrir því að ég kem hér nú er sú að í þeirri umræðu efaðist félagi minn, hv. þm. Mörður Árnason, um þessa frestun eins og hún var þá lögð fram. Ég vildi bara geta þess, af því að hann er ekki staddur hér, að hann hefur sagt mér að hann sé nú samþykkur þessari frestun eins og hún er lögð fram. Það er eina ástæða þess að ég er hér í kvöld.