140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

355. mál
[23:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Jónína Rós Guðmundsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Í I. og II. kafla umræddra laga eru ákvæði um sértækar aðgerðir til að leysa úr skuldavanda einstaklinga og fyrirtækja, svo og eftirlit með þeim aðgerðum. Kaflarnir hafa tímabundinn gildistíma og samkvæmt 12. gr. laganna falla þeir brott um næstu áramót. Með frumvarpinu er lagt til að gildistími þeirra framlengist til 31. desember 2012 svo unnt verði að ljúka skuldaaðlögun einstaklinga og fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja.

2. gr. þessara laga var ætlað að vera lagarammi utan um samkomulag um verklagsreglur sem fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður settu sér um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar. Slíkt samkomulag var gert í kjölfar lagasetningarinnar, en eftirlitsnefnd með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar hefur gert við það athugasemdir.

Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 2. gr. laganna í samræmi við athugasemdir og ábendingar eftirlitsnefndarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ákjósanlegast væri að viðbótarsamkomulag næðist um þessi atriði. Þar kemur einnig fram að nú sé unnið að slíku samkomulagi og nú hefur nefndin fengið öruggar upplýsingar um að samkomulag sé frágengið og undirritað milli þeirra aðila sem geta tekið að sér að vera umsjónaraðilar með skuldaaðlögunarferli. Eftirlitsnefndin kom meðal annars að gerð þess með Samtökum fjármálafyrirtækja.

Í ljósi þessa telur meiri hlutinn rétt að leggja til að 1. gr. frumvarpsins falli brott. Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, skal tekið fram að áætlaður kostnaður af samþykkt frumvarpsins er 70 millj. kr., þ.e. 50 millj. kr. vegna starfa eftirlitsnefndarinnar og 20 millj. kr. vegna starfa úrskurðarnefndar um skuldaaðlögun. Ekki er þó gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð, enda er kveðið á um það í 7. gr. laga hr. 107/2009 að lánastofnanir endurgreiði þann kostnað sem til fellur við rekstur nefndanna.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

1. gr. falli brott.

Undir þetta nefndarálit skrifa auk þeirrar sem hér stendur Álfheiður Ingadóttir, Lúðvík Geirsson, Kristján L. Möller, Valgerður Bjarnadóttir, Pétur H. Blöndal, Unnur Brá Konráðsdóttir og Guðmundur Steingrímsson.