140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

almannatryggingar o.fl.

380. mál
[12:03]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég fagna sérstaklega breytingartillögum frá hv. velferðarnefnd um það að draga til baka tillögur um þriggja mánaða sveltitíma. Ég er sérstaklega ánægð með úrræðið Til vinnu og ég vona svo sannarlega að það takist. Ég get ekki stutt að samningar muni ekki standa og að bæturnar verði einungis hækkaðar um 3,5% en styð heils hugar aðrar breytingartillögur.