140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

almannatryggingar o.fl.

380. mál
[12:08]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Hér er gert ráð fyrir því að bætur séu hækkaðar um 3,5%. Ekki get ég verið á móti því. Ég get ekki lagt til að þær verði ekki hækkaðar neitt þannig að ég mundi vilja styðja það að þær yrðu hækkaðar um 3,5% en vegna þess að 3,5% er miklu minna en bæði verðlag og launaþróun hefur gefið til kynna get ég heldur ekki vera með þessu.

Ég sit hjá.