140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

frestun á fundum Alþingis.

401. mál
[12:26]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 16. desember 2011 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 16. janúar 2012.“

Tillagan skýrir sig sjálf.