140. löggjafarþing — 42. fundur,  16. jan. 2012.

minningarorð um Jóhannes Halldórsson.

[15:09]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þá vill forseti fyrir hönd Alþingis senda kveðju aðstandendum Jóhannesar Halldórssonar cand. mag. en hann lést í síðustu viku, 94 ára gamall. Jóhannes vann fyrir Alþingi í yfir 60 ár, sem fastur starfsmaður 1947–1983 og síðan í ýmsum verkefnum og ráðgjöf fyrir skrifstofuna og forseta þingsins fram á síðustu ár. Hann var staðgengill skrifstofustjóra og þekktur að samviskusemi og vandvirkni í störfum fyrir Alþingi.