140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[15:57]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Þetta hefur verið góð og þroskuð umræða og málsmeðferðin að mörgu leyti ánægjuleg og gaman að sjá þingmannamál ná svona langt í þinginu. Ég studdi þá breytingartillögu sem lögð var fram. Ég treysti mér hins vegar ekki til þess að stíga þetta skref en ég óska öllum áhugamönnum um málið til hamingju með það.