140. löggjafarþing — 47. fundur,  24. jan. 2012.

tollalög.

367. mál
[19:01]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir að þetta verði eitt af því sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd fer yfir á milli umræðna. Við getum tekið þá umræðu um málið þegar það kemur aftur inn í þingið til 2. umr.