140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:04]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 30. janúar sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. tölul. 1. mgr. 30. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Náttúruminjasafn Íslands.