140. löggjafarþing — 54. fundur,  3. feb. 2012.

félagsleg aðstoð.

50. mál
[15:37]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. flutningsmanni fyrir þetta svar og það er svo sem kannski það sem við var að búast. Það er ekki alveg ljóst hver kostnaður yrði af þessu eða hvað þetta eru margir, en það er auðvitað hlutverk nefndarinnar líka að reyna að fá það upp í umsögnum og samtölum við sérfræðinga.

Ég vil auk þessara þakka lýsa mig sammála og fylgjandi þessu máli. Ég vona að þetta komist í gagnið án tillits til þess hvaða mál önnur eru rædd á vettvangi nefndarinnar eða hér í þingsölum.