140. löggjafarþing — 56. fundur,  14. feb. 2012.

heildstæð orkustefna fyrir Ísland.

266. mál
[14:25]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst þessi hugmynd vera vel umhugsunarverð og eitt af meginatriðunum sem þar er verið að hugsa um er gegnsæi þannig að ljóst sé hvaða fjárhæðir renna til þjóðarinnar af þessari auðlind. Verið er að hugsa um gegnsæi og upplýsingar, að okkur sé ljóst hvaða rentu við fáum af auðlindinni.