meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég fagna endurkomu þessa máls hér inn í þingið aftur. Þessi umræða um fundarstjórn forseta áðan var með eindæmum. Ég er flutningsmaður þessarar tillögu og hef komið að öllum þeim breytingum sem gerðar hafa verið á henni. Ég hef stutt þær. Hún er í öllum meginatriðum nákvæmlega eins og upprunalega tillagan þó að dagsetningum hafi verið hnikað til þannig að allt það moldviðri sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa verið að þyrla hér upp um þetta mál er hið ómerkilegasta.
Við skulum ekki gleyma því að það voru framsóknarmenn sjálfir, eins og hæstv. utanríkisráðherra benti á, sem lögðu til fyrstir allra að stjórnlagaráði yrði komið á og endurskipun stjórnarskrár Íslands. Þeir hafi þökk fyrir það þó að þeim hafi einhverra hluta vegna snúist hugur síðan og þeir útskýra það þá væntanlega hvers vegna það er.
Mig langar að beina einni spurningu til hv. formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar varðandi þær tímasetningar sem nú eru inni, þær eru svolítið knappar, og hvort því hafi verið velt upp að færa þjóðaratkvæðagreiðsluna fram eftir sumrinu eða fram á haustið. Annars yrði hún hugsanlega samhliða forsetakosningum og það hefur verið umdeilt að hafa almennar þjóðaratkvæðagreiðslur samhliða kosningum sem í eðli sínu eru pólitískar.