140. löggjafarþing — 60. fundur,  22. feb. 2012.

meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.

6. mál
[15:52]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég er þingmaður í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ég er ein þeirra sem vilja gera breytingar á stjórnarskránni. Ég er hluti þjóðarinnar og ég er kjörin á þing af hluta þjóðarinnar en get hvorki sem þingmaður né hluti þjóðarinnar fellt mig við það ferli sem hér er lagt upp með. Þess vegna segi ég nei.