140. löggjafarþing — 60. fundur,  22. feb. 2012.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum og tollalög.

508. mál
[15:59]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvöru, og jafnframt breytingu á tollalögum. Hér er um að ræða mál á þskj. 770, 508. mál þessa þings.

Forsaga málsins er sú að umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu frá 18. júlí 2011 að þær heimildir sem ráðherra eru veittar til álagningar tolla samkvæmt ákvæðum tollalaga og laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum væru ekki í samræmi við þær kröfur um skattlagningarheimildir sem leiðir af ákvæðum 40. gr. og 1. mgr. 77. gr. stjórnarskrárinnar.

Í kjölfar álits umboðsmanns ákvað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í samráði við fjármálaráðherra, að fela starfshópi að fjalla um álitið og gera tillögur að breytingum á ákvæðum tollalaga og laga um framleiðslu, sölu og verðlagningu á búvörum, að teknu tilliti til athugasemda umboðsmanns Alþingis og þeirra þjóðréttarlegu skuldbindinga sem Ísland hefur undirgengist. Í hópnum áttu sæti fulltrúar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Þá vann ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara með starfshópnum, en hún er skipuð fulltrúum frá þremur ráðuneytum. Frumvarp þetta er byggt á tillögum starfshópsins.

Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi þessu miða að því að takmarka eins og kostur er þau matskenndu skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt við ákvörðun um úthlutun tollkvóta og kveða skýrt á um tollprósentu sem vörur sem fluttar eru inn á grundvelli tollkvóta skulu bera þannig að ákvæði laganna fái staðist fyrrgreind ákvæði stjórnarskrárinnar.

Í frumvarpi þessu er lagt til að miða skuli við magntolla við úthlutun á tollkvótum samkvæmt viðaukum IIIA og B við tollalög en ekki verðtolla. Í þessum viðaukum eru tilgreindir tollkvótar samkvæmt skuldbindingum Íslands í samningnum um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem skylt er að úthluta árlega. Af gildandi ákvæði verður ráðið að ráðherra hafi í ákveðnum tilvikum val um hvort lagður sé á magntollur eða verðtollur. Hér er lagt til að tollurinn verði magntollur en ekki verðtollur þar sem sá fyrrnefndi verndar betur innlenda framleiðslu þegar verð á heimsmarkaði er lágt og dregur úr verðsveiflum á innanlandsmarkaði. Ætla má að betri sátt verði um framkvæmd málsins á þessum grunni.

Í frumvarpinu er lagt til að skilgreint verði nánar hvaða staða þurfi að vera uppi á innanlandsmarkaði til að tollkvótum sé úthlutað samkvæmt viðaukum IVA og B. Í gildandi ákvæði er kveðið á um heimild ráðherra til úthlutunar úr viðaukunum. Lagt er til að ráðherra verði skylt að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur þegar sýnt þykir að ekki sé nægjanlegt framboð af viðkomandi vöru á innanlandsmarkaði. Ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara verður þá falið það hlutverk að safna upplýsingum um stöðu og horfur á markaði og gera tillögur til ráðherra um úthlutun tollkvóta.

Til að ráðherra sé skylt að úthluta tollkvótum þurfa ákveðin hlutlæg skilyrði að vera uppfyllt samkvæmt frumvarpinu. Sé vara ekki til stöðugrar dreifingar í að lágmarki 90% magni af eftirspurn að minnsta kosti tveggja leiðandi ótengdra dreifingaraðila er lagt til að ráðherra skuli úthluta tollkvótum samkvæmt viðaukum IVA og B. Gert er ráð fyrir að ráðgjafarnefndin leiti upplýsinga frá að minnsta kosti tveimur leiðandi ótengdum dreifingaraðilum um eftirspurn eftir tiltekinni vöru á innanlandsmarkaði. Þannig er stefnt að því að tryggja sem gleggsta mynd af markaðsaðstæðum hverju sinni og jafnframt koma í veg fyrir að tengdir aðilar geti samræmt aðgerðir til að knýja á um úthlutun tollkvóta. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að vara teljist ekki í boði á innanlandsmarkaði í nægjanlegu magni ef hún er eingöngu fáanleg frá einum innlendum framleiðanda. Þannig er stefnt að því að tryggja ákveðna verðsamkeppni á markaðnum.

Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að nánar verði skýrt hvernig tollur skuli ákveðinn við úthlutun tollkvóta og lögfest hlutlægt skilyrði fyrir þeirri ákvörðun. Lagðar eru til breytingar sem fela í sér að ekki er lengur um að ræða framsal á valdi til ráðherra til að ákveða toll á vörur sem fluttar eru inn samkvæmt tollkvótum, heldur mun tollurinn ákvarðast á grundvelli hlutlægra viðmiða sem kveðið er á um í lögunum.

Hlutverk ráðgjafarnefndar sem starfar samkvæmt 87. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum er skilgreint frekar í frumvarpi þessu og gert ráð fyrir því að nefndin sinni talsverðri upplýsingasöfnun um stöðu á markaði. Í frumvarpinu eru því lagðar til breytingar á ákvæði um heimild til álagningar dagsekta á þá aðila sem skylt er að veita upplýsingar samkvæmt lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Mikilvægt er að aðilar sem safna upplýsingum samkvæmt lögunum hafi úrræði til að bregðast við þegar aðilar sem skylda hvílir á um að veita upplýsingar tregðast við að láta þær í té. Gera má ráð fyrir því að ráðgjafarnefndin muni oft og tíðum þurfa að ráðast í viðamikla upplýsingasöfnun og er þá nauðsynlegt að hægt sé að knýja fram gögn með beitingu viðurlaga.

Frumvarp þetta viðheldur að mörgu leyti þeirri framkvæmd sem almennt hefur tíðkast um úthlutun tollkvóta en með því að lögfesta skýr og hlutlæg viðmið fyrir ákvörðunum er talið að komið sé til móts við athugasemdir umboðsmanns Alþingis. Skilyrðin sem sett eru fram í frumvarpinu miða að því að nægjanlegt magn af landbúnaðarvörum sé til staðar á innanlandsmarkaði á hverjum tíma þannig að þörfum neytenda sé fullnægt. Þá er stefnt að því að tryggja ákveðna verðsamkeppni á markaði með því að tryggja að varan sé ávallt fáanleg frá fleirum en einum framleiðanda, neytendum til hagsbóta. Þó er ekki hróflað við þeirri stefnu að innlend framleiðsla skuli njóta verndar gagnvart innflutningi, eins og okkur er heimilt að gera samkvæmt alþjóðaskuldbindingum okkar, og sé kleift að standast verðsamkeppni við vörur sem fluttar eru inn á grundvelli tollkvóta.

Frú forseti. Með frumvarpi þessu er komið til móts við þær athugasemdir sem ég áður gerði grein fyrir í áliti umboðsmanns Alþingis frá 18. júlí 2011. Ég legg svo til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu þar sem ég hef gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins verði því vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar, en það verði í höndum atvinnuveganefndar að útfæra samráð sitt við efnahags- og viðskiptanefnd sem eðlilegt er að viðhaft sé í málinu, samanber hið tvíþætta eðli þess.