Herra forseti. Í fyrsta lagi hvað varðar tímann hef ég varað við því að sá tími sem líður frá því að stjórnlagaráðið hefur skilað tillögum sínum til þingsins er of skammur tími fyrir þingið til að ganga frá málinu formlega, til að leggja það fram, til að eiga samráð í landkjörstjórn o.s.frv. Það er einn þáttur málsins.
Annað varðar einmitt það sem fram kom í máli hv. þm. Margrétar Tryggvadóttur, þá ósk að stjórnlagaráð væri kallað saman með formlegum hætti. Ég hef bent á að það skorti mjög upp á alla formgeringu í því máli. Annaðhvort hefði þurft að endurkjósa þessa einstaklinga eða að gefa út eitthvert skipunarbréf og standa að þessu með miklu formfastari hætti því að fyrir liggur jú að stjórnlagaráð hefur lokið störfum sínum. Það er ekki upp á það bjóðandi að farið sé af stað með þessum hætti, með þessari óvissu meðal annars um hversu margir (Forseti hringir.) munu mæta til þessara funda. (MT: Það er engin óvissa.) Óvissan er mikil, eins og fram hefur komið, (Gripið fram í.) og það er alveg furðulegt að menn skuli geta (Forseti hringir.) lokað augunum fyrir því.