Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 61. fundur,  23. feb. 2012.

skýrsla Hagfræðistofnunar Háskólans um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:41]
Hlusta - Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Við ræðum skýrslu Hagfræðistofnun Háskólans um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána, eða öllu heldur munnlega skýrslu forsætisráðherra um hana.

Háskóli Íslands er mér afar kær stofnun. Þar stundaði ég nám og þótt ég hafi stundað nám í hugvísindum lærði ég hvernig maður ætti að fara með heimildir og gögn. Slíkt er nefnilega mismerkilegt og þegar upplýsingar koma frá hagsmunaaðilum ber að taka þeim með fyrirvara í öllu rannsóknastarfi.

Við vitum að fyrir hrun gerðu fyrirtæki og hagsmunasamtök atvinnulífsins töluvert af því að panta skýrslur um allt mögulegt sem studdu málstað þeirra sjálfra. (VigH: Eins og ríkisstjórnin gerir það.) Fræðimönnum og stofnunum var þá greitt fyrir að vinna álit upp úr gögnum sem þeir fengu hjá þeim sem pantaði það. Sumir hafa notað hugtakið akademískt vændi yfir þess konar vinnu. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, nánar tiltekið í 8. bindi, þ.e. siðfræðihlutanum, er að finna harða gagnrýni á háskólasamfélagið fyrir hrun, sem og fjölmiðla. Bent er á skýrslur sem háskólaprófessorar gerðu fyrir Viðskiptaráð Íslands fyrir háar fjárhæðir um fjárhagslegan stöðugleika á landinu. En dæmin eru fleiri og margslungnari. Miklar kröfur eru á háskóla, ekki bara hér á landi heldur víða um heim, að virkja fleiri tekjustofna, og þá er veruleg hætta á hagsmunaárekstrum og að fræðimenn fari að ástunda sjálfsritskoðun, þori sem sagt ekki að setja fram skoðun sem ekki er kostunaraðilum þóknanleg og jafnvel ekki heldur skoðun sem ekki væri hugsanlegum framtíðarkostunaraðilum að skapi. Fyrir hrun voru það bankarnir sem ekki mátti styggja, en könnun á fjárveitingum frá þeim til háskólanna á árunum 2003–2008 leiddi í ljós að Háskóli Íslands hafði þegið 121 millj. kr. frá fjármálafyrirtækjunum, HR 142 millj. kr. auk 55,6 millj. kr. í nemendastyrki, HA þáði 31 millj. kr. og 5 millj. kr. að auki í nemendastyrki. Háskólinn á Bifröst hafði gert samninga við alla bankana sem hefði fært honum 90 millj. kr. á þremur árum en aðeins fyrsta greiðslan upp á 10 millj. kr. hafði borist fyrir fall bankanna. Þótt þessir styrkir hafi ekki verið stór hluti af heildarkökunni ógnuðu þeir bæði sjálfstæði skólanna sem og einstakra fræðimanna. Um það má lesa nánar á bls. 112 í 8. bindi skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Erfiðast er þó að henda reiður á og uppræta þöggunina, sjálfsritskoðunina og meðvirknina. Mér finnst margt benda til þess að ástandið hafi ekki batnað núna eftir hrun svo heitið geti. Eini munurinn er nú að stóri skýrslukaupandinn er ekki atvinnulífið heldur ríkið. Og enn þorir enginn að rugga bátnum. Allir hafa fyrir fjölskyldu að sjá, þurfa að greiða næstu afborgun af stökkbreytta láninu sínu og það er bara öruggara að þegja. Annars eiga menn á hættu að missa bitlingana; nefndarsetuna, skýrslugerðina eða hvað það nú er sem heldur fjölskyldunni á floti.

Þann 1. október afhenti Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, forsætisráðherra undirskriftalista með undirskriftum 33.525 einstaklinga sem vildu gera kröfur Hagsmunasamtaka heimilanna að sínum. Krafan var svohljóðandi:

„Í nafni almannahagsmuna krefjumst við undirrituð almennra og réttlátra leiðréttinga á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar.

Hafi stjórnvöld ekki orðið við þessari kröfu fyrir 1. janúar 2012 jafngildir undirskrift mín kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfugerðina.“

Með undirskriftalistanum fylgdu fjórar mismunandi leiðir til leiðréttinga frá Hagsmunasamtökunum.

Þann 4. október 2011 gaf forsætisráðherra það út að nú skyldi kalla aftur saman sérfræðingahópinn frá árinu áður til að meta hvert svigrúmið væri í eitt skipti fyrir öll og var send út fréttatilkynning frá ráðuneytinu um það. Þar kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fjármálafyrirtækja hafi bankarnir afskrifað 144 milljarða frá hruni. Það vissum við öll sem höfum fylgst með þessu en þegar rýnt er nánar í töluna má sjá að ekki er um að ræða raunverulegar afskriftir nema að litlu leyti. Langstærsti hlutinn er ránsfengur vegna gengistryggðra lána sem dæmd höfðu verið ólögmæt, þ.e. um 120 milljarðar, kröfur sem eru óinnheimtanlegar að miklu leyti sem verið hafa afskrifaðar með 110%-leiðinni. Við skulum líka hafa það í huga að til er nokkuð sem heitir 100%-leið og hún heitir gjaldþrot. Minnsti hlutinn er vegna sértækrar skuldaaðlögunar sem eru kannski einu raunverulegu afskriftirnar. Ég hef lengi efast um að í raun og veru hafi verið afskrifað svona mikið og ég hef lagt fram fyrirspurn á þinginu um afskriftir vegna gengistryggðra lána. Mér hefur bara verið svarað með skætingi og sagt að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslandi hafi það ekki sem forgangsatriði að halda þessum upplýsingum saman.

Sérfræðingahópurinn var sem sagt ekki kallaður til heldur var verkefninu komið fyrir hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og var henni einnig falið að meta þá kosti sem Hagsmunasamtökin höfðu lagt til. Afraksturinn er sú skýrsla sem við ræðum hér og leit dagsins ljós þremur og hálfum mánuði eftir 1. október.

Margir hafa gagnrýnt þessa skýrslu og þótt ég sé aðallega menntuð í hugvísindum get ég tekið undir gagnrýni á þá tölu sem sett hefur verið fram. Eiginlega finnst mér það besta við þessa skýrslu að hún er svo hrikalega léleg að það er svo auðvelt að gera lítið úr henni.

Þau atriði sem ég get ekki betur séð en að séu grundvallarmistök eru nokkur. Í fyrsta lagi er það sú staðreynd að á síðu 11 er sama tilkynning frá Samtökum fjármálafyrirtækja og minnst er á í fréttatilkynningu ráðuneytisins frá 4. október tekin góð og gild sem heimild um svigrúm bankanna til afskrifta. Eftir allt sem á undan er gengið trúi ég ekki orði frá þessum félagsskap. Samkvæmt orðum forsætisráðherra þann 4. október var ástæðan fyrir skýrslugerðinni sú að komast að raunverulegu svigrúmi fjármálafyrirtækjanna. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að eftir þriggja og hálfs mánaðar bið mundi Hagfræðistofnun Háskóla Íslands birta gagnrýnislaust sömu tilkynningu og skýrslukaupandinn sjálfur biður um að sé rannsökuð án þess að gera nokkra tilraun til að rannsaka hana. Málið í hnotskurn er að SFF leggja fram tölu og segja að svigrúmið sé uppurið. Hagsmunasamtökin, ég og margir fleiri segjumst ekki trúa þessu enda sýni upplýsingar fram á annað, meðal annars í skýrslu fjármálaráðherra um endurreisn bankanna. Hagfræðistofnun er fengin til að sannreyna tölurnar og eftir dúk og disk birtir hún fréttatilkynningu frá SFF í skýrslunni og þá er hún allt í einu orðin heilagur sannleikur.

Svo kemur núna dómur Hæstaréttar um gengislánin og þá er allt í einu svigrúm í bönkunum til að leiðrétta þau frekar þannig að það stendur ekki steinn yfir steini í þessu. Annað sem mér finnst verulega ámælisvert eru lagatúlkanir Hagfræðistofnunar sem hljóta að liggja utan sérsviðs hennar. Reyndar er þetta ekki eina stofnunin í háskólanum sem tekur að sér lagatúlkun skuldurum í óhag því að umboðsmaður skuldara vildi láta kanna endurútreikning gengistryggðra lána og fékk til þess Raunvísindastofnun af því að Lagastofnun Háskóla Íslands treysti sér ekki í „djobbið“ á stuttum tíma. Raunvísindastofnun gaf þessu öllu saman heilbrigðisvottorð sem stjórnvöld hafa flaggað við ótal tækifæri.

Lykilspurningin hlýtur að vera: Hvað kostar að gera ekki neitt? Hvað kostar þetta óbreytta ástand? Hvað kostar það samfélagið að 60 þús. heimili séu tæknilega gjaldþrota?

Í mínum huga hefur Hagfræðistofnun Háskóla Íslands misst allan trúverðugleika sinn en kannski mun hún fá aukin verkefni frá ríkisstjórninni í kjölfarið enda hefur það sýnt sig að stjórnvöld geta stólað á að fá þær niðurstöður sem þeim hentar. Ég hef lagt fram fyrirspurn í þinginu um hvað þetta ævintýri kostar og líka hvers vegna ekki var veittur sá aðgangur sem þurfti til að fá alvöruniðurstöðu til að svara þessum spurningum.

Mér finnst eiginlega ótrúlegt að við séum í alvörunni að ræða þessa skýrslu. Þetta eru ekki áreiðanlegar heimildir. Hreyfingin hefur kynnt forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar tillögu að lausn á vandanum. Við höfum sent þá tillögu á alla þingmenn og ég vona að menn kynni sér hana. Þetta er verkefni sem við verðum að leysa.

Næsta ræða