140. löggjafarþing — 71. fundur,  13. mars 2012.

vísun skýrslna alþjóðanefnda til nefndar.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að nú hefur verið útbýtt átta skýrslum alþjóðanefnda þingsins, þ.e. skýrslum frá alþjóðadeild Alþjóðaþingmannasambandsins, Íslandsdeild Evrópuráðsins, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES, Íslandsdeild NATO-þingsins, Íslandsdeild Norðurlandaráðs, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu.

Samkvæmt ákvæði 6. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa er þeim vísað til utanríkismálanefndar til umfjöllunar.