140. löggjafarþing — 71. fundur,  13. mars 2012.

netfærsla af nefndarfundi.

[14:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti hugðist nú hefja hér sérstaka umræðu þar sem málshefjandi er hv. þm. Vigdís Hauksdóttir. Þingmaðurinn hafði óskað eftir því að fá að bera af sér sakir en þingmaður sem hefur brotið þingsköp getur ekki komið hingað upp og borið af sér sakir, en forseti mun heimila þingmanninum að koma upp í umræðu um fundarstjórn forseta og síðan hefst hin sérstaka umræða.