140. löggjafarþing — 71. fundur,  13. mars 2012.

tollalög o.fl.

584. mál
[15:05]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þetta mál er seint fram komið og kannski ekki til fyrirmyndar hvernig við stöndum að því en hins vegar er mun betra að við greiðum atkvæði með því en ekki. Þetta er ívilnandi fyrir atvinnulífið í landinu og ég mæli með því að við segjum já.