140. löggjafarþing — 75. fundur,  20. mars 2012.

efling græna hagkerfisins á Íslandi.

7. mál
[14:58]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Ég fagna þessu mikla framfaraskrefi og ég er mjög ánægð með að við höfum tekið þetta skref. Ég hefði viljað ganga aðeins lengra en þetta er þó upphafið að einhverju sem ég er sannfærð um að þeir sem koma til með að erfa Ísland verða þakklátir fyrir. Ég er ánægð með að þingið geti unnið saman að svona mikilvægu verkefni og vil þakka hv. þm. Skúla Helgasyni fyrir þá vinnu sem hann hefur lagt í þetta. Ég vona að við þingmenn berum gæfu til að vinna fleiri svona mikilvæg verkefni sameiginlega með framtíðarsýn að leiðarljósi.