140. löggjafarþing — 75. fundur,  20. mars 2012.

Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

346. mál
[17:42]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, með síðari breytingum.

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá innanríkisráðuneyti.

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ákvæði í lög um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað um hvernig skuli staðið að útgáfu lagasafns. Með frumvarpinu er brugðist við athugasemdum umboðsmanns Alþingis um hvernig útgáfu lagasafns skuli háttað. Kveðið er á um það í frumvarpinu að ráðherra sjái um útgáfu lagasafns og taki jafnframt ákvörðun um hvort það verði í prentuðu formi, að fenginni tillögu ritstjórnar sem hann skipar til fimm ára í senn.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Þráinn Bertelsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta rita Björgvin G. Sigurðsson, formaður, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Magnús Orri Schram, Árni Páll Árnason, Eygló Harðardóttir, Þuríður Backman, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Birgitta Jónsdóttir.