Virðulegi forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hér hefur verið hafin um lánveitingar Seðlabanka Íslands til Kaupþings banka þá er það rétt sem kom fram hjá hv. þm. Helga Hjörvar að á sameiginlegum fundi þeirra tveggja nefnda sem nefndar voru áðan var lagt fram svar frá seðlabankastjóra vegna þessa máls. Ég spurði sérstaklega eftir því á þeim fundi hvort eitthvað nýtt hefði komið fram í því svari, eitthvað sem ekki hefði áður komið fram, annars vegar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og/eða í almennri opinberri umræðu um þessi mál. Þau svör sem ég fékk voru á þá leið að ekkert nýtt hefði komið fram í þessu máli.
Staðan er auðvitað sú að Seðlabanki Íslands tók þá ákvörðun að sinna skyldu sinni sem lánveitandi til þrautavara og reyna með þessari lánveitingu að koma þessum banka til hjálpar. En vegna þeirrar óvissu sem augljós var var tekið allsherjarveð í FIH-bankanum sem átti að tryggja að ef bankinn stæðist ekki þá hefði Seðlabankinn fullnægjandi veð.
Síðan er það annað mál, herra forseti, hvernig staðið var að sölu þess banka, þ.e. FIH-bankans, og ég get tekið undir það með hv. þm. Helga Hjörvar að ástæða er til að skoða vel hvernig staðið var að þeirri sölu og hvernig hagsmunir Seðlabankans, og þar með íslenska ríkisins, voru tryggðir. En ég tel, herra forseti, að öll meginatriði þessa máls liggi mjög ljós fyrir. Þau gerðu það eftir skoðun og rannsókn sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem farið er yfir þetta mál með býsna nákvæmum hætti.
Herra forseti. Að sjálfsögðu eigum við að læra af reynslunni af þessu máli og reyndar mörgum öðrum. Vonandi koma slíkar aðstæður ekki upp aftur en gerist það þá skiptir að sjálfsögðu máli að við höfum aflað okkur allra upplýsinga og lært af þeim. Það er ekki nóg að afla upplýsinganna, það þarf líka að læra af þeim.