Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 76. fundur,  21. mars 2012.

Afbrigði um dagskrármál.

[16:12]
Hlusta - Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Herra forseti. Það virðist vera þannig að lagður sé aðeins öðruvísi skilningur í þessa umræðu en ég legg upp með varðandi mína afstöðu. Ástæðan fyrir því að ég ætla að greiða atkvæði á móti, og hef gert það nú þegar, þeirri tillögu að veita afbrigði er einkum og sér í lagi sú að hér eru lagðar fram spurningar sem eiga að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég vil hafa tíma samkvæmt þingsköpum til að fara yfir orðalagið, leita mér ráðgjafar annars staðar hjá sérfræðingum um þetta orðalag þannig að hægt sé að tala um þessa hluti af einhverju viti hér í þinginu.

Ég ráðlegg öðrum hv. þingmönnum, herra forseti, að gera slíkt hið sama. (Gripið fram í: Við erum búin að því.) Búin að því, er hér kallað fram í. Það vill þannig til að stærstur hluti hv. þingmanna situr ekki í þessari nefnd. Þetta plagg var að koma fram og þannig vill til að þetta er eitthvert mikilvægasta mál sem nokkurt þjóðþing getur fengist við (Forseti hringir.) sem er sjálf stjórnarskráin. (Gripið fram í.) Það er ótrúlegt, herra forseti, að hlusta á það sem kallað er hér fram í þingsalinn (Forseti hringir.) þegar verið er að fara fram á þá einföldu kröfu að við höfum nægan tíma til að kynna okkur þetta mál þannig að við getum haft vitræna umræðu hér í þinginu. (Gripið fram í: Má ekki ræða það einu sinni?)

Næsta ræða