140. löggjafarþing — 78. fundur,  28. mars 2012.

Varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hafa bréf frá Birgittu Jónsdóttur og Þuríði Backman um að þær séu erlendis og geti því ekki sinnt þingstörfum. Í dag taka sæti á Alþingi varamenn þeirra, Baldvin Jónsson og Bjarkey Gunnarsdóttir. Þau hafa bæði tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og eru boðin velkomin til starfa á ný.