140. löggjafarþing — 85. fundur,  18. apr. 2012.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

727. mál
[17:53]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Þingsályktunartillagan er lögð fram í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Samkvæmt 3. gr. þeirra laga skal iðnaðarráðherra leggja í samráði og samvinnu við umhverfisráðherra eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

Markmið verndar- og nýtingaráætlunar er að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Í verndar- og orkunýtingaráætlun er í samræmi við markmið laga nr. 48/2011 lagt mat á verndar- og orkunýtingargildi landsvæða og efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif nýtingar, þar með talið verndunar.

Á grundvelli framangreindra sjónarmiða er í þeirri þingsályktunartillögu sem ég mæli fyrir mótuð stefna um hvort landsvæði þar sem er að finna virkjunarkosti megi nýta til orkuvinnslu eða hvort ástæða sé til að friðlýsa þau eða rannsaka frekar. Virkjunarkostum er samkvæmt því flokkað í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk. Flokkun sú sem fram kemur í þingsályktunartillögunni byggir á skýrslu verkefnisstjórnar um gerð rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafls- og jarðhitasvæði, sem skipuð var af iðnaðarráðherra í samráði við umhverfisráðherra 24. ágúst 2007. Verkefnisstjórnin skilaði skýrslu sinni til iðnaðar- og umhverfisráðherra 5. júlí 2011.

Upphaflega voru 84 virkjunarkostir til skoðunar innan verkefnisstjórnar um rammaáætlun en af þeim koma 17 virkjunarkostir ekki til flokkunar þar sem þeir falla ekki undir gildissvið laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. Samtals eru því í þingsályktunartillögu þessari 67 virkjunarkostir flokkaðir í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011.

Í athugasemdum með þingsályktunartillögunni er í 2. kafla gerð nánari grein fyrir forsendum flokkunar virkjunarkosta. Í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011 voru þann 19. ágúst 2011 drög að þingsályktunartillögunni kynnt og send í opið tólf vikna umsagnar- og samráðsferli. Jafnframt fór í umsagnarferli umhverfismat á þingsályktunartillögunni sem unnið hafði verið í samræmi við ákvæði laga nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana.

Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fram komu í umsagnarferlinu hafa nokkrar breytingar verið gerðar á þeim drögum að þingsályktunartillögu sem send var til umsagnar 19. ágúst. Er í þingsályktunartillögunni gerð nánari grein fyrir þeim breytingum en í stuttu máli eru þær eftirfarandi:

Tveir virkjunarkostir, Eyjadalsárvirkjun og Hveravellir, eru teknir út úr áætluninni þar sem í ljós kom að þeir féllu utan gildissviðs laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. Sex virkjunarkostir, Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun, Hvammsvirkjun, Skrokkölduvirkjun, Hágönguvirkjun 1 og Hágönguvirkjun 2, eru færðir úr nýtingarflokki í biðflokk með vísan til ákveðinna varúðarsjónarmiða og nýrra upplýsinga eins og nánar er tilgreint í almennum athugasemdum með þingsályktunartillögunni og vík ég nánar að því síðar.

Að auki er í þingsályktunartillögunni áréttuð nokkur atriði er snúa að brennisteinsmengun og niðurdælingu og nýjum upplýsingum um Hagavatnsvirkjun auk þess sem nánari landfræðileg afmörkun er skilgreind fyrir virkjunarkostinn Sveifluháls.

Ég vil ítreka að við undirbúning og frágang þeirrar þingsályktunartillögu sem ég mæli fyrir var í einu og öllu fylgt ákvæði laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. Að gefnu tilefni langar mig til að rekja aðeins það ferli sem átti sér stað við frágang þingsályktunartillögunnar.

Þann 5. júlí 2011 skilaði, sem áður segir, verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar lokaskýrslu sinni til ráðherra. Skýrslan ber heitið Niðurstöður 2. áfanga rammaáætlunar. Mikilvægt er að hafa í huga að í skýrslunni er ekki að finna flokkun þeirra virkjunarkosta sem verkefnisstjórnin hafði til skoðunar, þ.e. virkjunarkostirnir eru ekki flokkaðir í orkunýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk. Niðurstöður verkefnisstjórnar birtast í töflu 7.2 í skýrslunni þar sem er að finna röðun verkefnisstjórnar á virkjunarkostunum, þ.e. annars vegar af sjónarhóli nýtingar og hins vegar af sjónarhóli verndar. Niðurstöður verkefnisstjórnar frá 5. júlí 2011 eru því ekki í formi þingsályktunartillögu um flokkun virkjunarkosta í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk. Skýrslan sem slík er því ekki þess eðlis að hægt hefði verið að leggja hana fram á Alþingi sem þingsályktunartillögu um flokkun virkjunarkosta.

Á grundvelli upplýsinga og tillagna í skýrslu verkefnisstjórnar var því í framhaldi af 5. júlí 2011 farið í þá vegferð með formanni verkefnisstjórnar, formönnum þeirra fjögurra faghópa sem stóðu að skýrslunni og fulltrúa iðnaðarráðuneytis og umhverfisráðuneytis að koma tillögu verkefnisstjórnar í þingtækan búning í formi þingsályktunartillögu um verndar- og orkunýtingaráætlun þar sem Alþingi ályktar um flokkun virkjunarkosta í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Þeirri vinnu lauk í ágúst og þann 19. ágúst voru drög að þingsályktunartillögunni kynnt og send í hið lögbundna tólf vikna umsagnarferli.

Að loknu umsagnarferlinu var ítarlega farið í gegnum þær 225 umsagnir sem bárust og lagt mat á hvort þar væri að finna einhverjar nýjar upplýsingar sem taka bæri lögum samkvæmt tillit til við endanlegan frágang þingsályktunartillögunnar. Niðurstaðan var að svo væri og eins og nánar er rökstutt í almennum athugasemdum með þingsályktunartillögunni voru því gerðar nauðsynlegar breytingar á þeim drögum að þingsályktunartillögu sem lágu fyrir og skjalið síðan klárað fyrir framlagningu á Alþingi.

Ég ítreka að allt er þetta ferli í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011 og þá aðferðafræði sem þar er lagt upp með og farið var rækilega í gegnum við yfirferð iðnaðarnefndar og umhverfisnefndar á því frumvarpi sem varð að lögum nr. 48/2011. Enn fremur má nefna að verklag þetta er í fullu samræmi við ákvæði Árósasamningsins sem innleiddur var í íslenskan landsrétt í lok síðasta árs og kveður meðal annars á um aukna þátttöku almennings í ákvarðanatöku í umhverfismálum.

Í þingsályktunartillögunni eru sem áður segir sex virkjunarkostir færðir úr orkunýtingarflokki í biðflokk frá því sem var í drögum að þingsályktunartillögu sem send var til umsagnar í ágúst síðastliðnum. Varðandi tilfærslu þessara virkjunarkosta vil ég benda á að lög nr. 48/2011 kveða skýrt á um hvaða rök réttlæta það að flokka virkjunarkost í biðflokk. Það er alls ekki svo að biðflokkur sé geymsla fyrir umdeilda virkjunarkosti sem taka eigi afstöðu til síðar. Í biðflokk má samkvæmt 5. gr. laganna eingöngu setja virkjunarkosti þar sem er talið að afla þurfi frekari upplýsinga um svo meta megi hvort þeir eigi að falla í orkunýtingarflokk eða verndarflokk. Ef virkjunarkostur er fullrannsakaður og fyrirliggjandi gögn metin fullnægjandi ber því að flokka hann í orkunýtingarflokk eða verndarflokk.

Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að fyrrnefndum lögum, nr. 48/2011, er undirstrikað að í biðflokk falli þeir virkjunarkostir sem að mati Alþingis er ekki unnt að flokka í annan hvorn framangreindra flokka þar sem fyrirliggjandi gögn og upplýsingar gefa ekki nægilega afgerandi til kynna í hvorn flokkinn virkjunarkostirnir ættu að falla. Segja má að varúðarsjónarmið búi að baki þessari hugsun laganna.

Þar sem í umsagnarferlinu koma sannarlega fram nýjar upplýsingar varðandi umrædda sex virkjunarkosti var litið svo á að með tilkomu þeirra nýju gagna hefði sú staða komið upp að fyrirliggjandi gögn og upplýsingar gáfu ekki nægilega afgerandi til kynna í hvorn flokkinn virkjunarkostirnir ættu að falla. Út frá 5. gr. laganna og þeim varúðarsjónarmiðum sem búa að baki því ákvæði er þessum sex virkjunarkostum því raðað í biðflokk í þeirri þingsályktunartillögu sem ég mæli fyrir.

Varðandi hinar nýju upplýsingar sem bárust í umsagnarferlinu um þessa sex virkjunarkosti er það tilgreint í athugasemdum með þingsályktunartillögunni að þær lúta annars vegar að mögulegum áhrifum framkvæmda vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár á laxfiska í ánni. Eru þar áhrif seiðaveitna meðal annars sérstaklega tilgreind og að fyrirliggjandi gögn sem verkefnisstjórnin hafði til hliðsjónar séu ekki fullnægjandi.

Hins vegar er um að ræða að við vinnu verkefnisstjórnar hafi áhrif virkjunarkostanna Skrokkölduvirkjunar og Hágönguvirkjunar 1 og 2 á áhrifasvæði Vatnajökulsþjóðgarðs ekki verið metin. Er þar um alþjóðleg viðmið að ræða sem ætlað er að tryggja að verndargildi hins friðlýsta svæðis skerðist ekki vegna athafna á aðliggjandi svæðum. Var það mat mitt og umhverfisráðherra að ekki væri unnt að horfa fram hjá þessum tilgreindu nýju upplýsingum sem bárust í umsagnarferlinu og voru því viðkomandi virkjunarkostir flokkaðir í biðflokk í endanlegri útgáfu þingsályktunartillögunnar sem hér er til umfjöllunar.

Í því sambandi vil ég taka fram að í athugasemdum með þingsályktunartillögunni er það áréttað að ný verkefnisstjórn, sem skipuð verður þegar þingsályktunartillaga þessi hefur verið samþykkt, mun vinna áfram með þá virkjunarkosti sem eru í biðflokki og meta hvort ástæða sé til að leggja til við ráðherra rökstudda tillögu um að breyta flokkun í samræmi við lögin. Þeim sértæku rannsóknum sem lagt er til að verði gerðar í Þjórsá og greint er frá í þingsályktunartillögunni verður hrint í framkvæmd af nýrri verkefnisstjórn og ný tillaga byggð á niðurstöðu þeirra. Ný tillaga mun einnig taka tillit til áhrifa virkjunarkosta á áhrifasvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, nýrra upplýsinga um Hagavatnsvirkjun og eftir atvikum annarra atriða er varða virkjunarkosti í biðflokki. Áréttað er að í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laganna þarf ekki að bíða í fjögur ár til að leggja fram tillögu á Alþingi á grundvelli laganna, þ.e. hún þarf ekki að vera hluti af reglubundinni fjögurra ára tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, heldur getur hún komið fyrr fram.

Í athugasemdum með þingsályktunartillögunni kemur fram að ný verkefnisstjórn skuli skila áfangaskýrslu fyrir 1. september 2013 um stöðu mála hafi hún ekki þá þegar lagt fram tillögur sínar. Skal sú áfangaskýrsla ná til áðurnefndra rannsókna í Þjórsá, áhrifa virkjunarkosta á hálendi Vatnajökulsþjóðgarðs og nýrra upplýsinga um Hagavatnsvirkjun. Mun ráðherra kynna Alþingi áfangaskýrsluna og eftir atvikum í framhaldi af því leggja fram nýja tillögu.

Að lokum vil ég geta þess til upplýsingar að þeir 67 virkjunarkostir sem þingsályktunartillagan nær til skiptast þannig á milli orkunýtingarflokks, biðflokks og verndarflokks að 16 virkjunarkostir eru í orkunýtingarflokki, 31 í biðflokki og 20 í verndarflokki. Áætluð orkuvinnslugeta í orkunýtingarflokki er 8,5 teravattstundir, í biðflokki 12,5 teravattstundir og í verndarflokki 11,3. Til hliðsjónar við þessar tölur er núverandi orkuvinnsla á Íslandi um 17 teravattstundir.

Ég leyfi mér að minna á að markmið rammaáætlunar er að stuðla að meiri sátt um vernd og orkunýtingu landsvæða. Að vernda af skynsemi og að nýta af skynsemi. Miklu hefur verið til kostað að vinna að þessu máli og er það því von mín að þingsályktunartillaga þessi um verndar- og orkunýtingaráætlun hljóti ítarlega og málefnalega umfjöllun í þinginu og verði á endanum það mikilvæga stefnumótandi skjal sem lagt var af stað með í upphafi.