140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Gunnari Braga Sveinssyni, 4. þm. Norðvest., um að hann sé á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum og geti ekki sinnt þingstörfum næstu tvær vikur. Eins og þegar hefur verið tilkynnt á vef þingsins tók varamaður hans, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson bóndi, sæti á Alþingi í gær, 23. apríl. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og er boðinn velkominn til starfa á ný.