140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

mælendaskrá í óundirbúnum fyrirspurnum.

[14:05]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta bárust margar fyrirspurnir fyrir þennan fund um fyrirspurnir til ráðherra og hefur þegar tekið ákvörðun um það hverjir fengu að taka til máls. Fimm fyrirspurnir komast að en mun fleiri fyrirspurnir bárust og forseti hefur reynt að gæta jafnræðis meðal þingmanna um að fá að komast að með fyrirspurnir.