140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[19:24]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Af þessu tilefni finnst mér rétt að ítreka að ástæða þess að ég er hlynnt þessari framkvæmd á þessum tímum þegar lítið er um vinnu og nauðsynlegt er að koma á stórum verkefnum, er sú að framkvæmdin verður fjármögnuð og greidd niður með veggjöldum. Það er ástæðan fyrir því að við getum farið í þessa framkvæmd. Ríkissjóður hefur ekki burði til að fjármagna gerð ganganna eins og önnur göng á samgönguáætlun. Ástæðan fyrir því að við tökum þessa stóru samgönguframkvæmd fram yfir aðrar brýnar er að hún er fjármögnuð með veggjöldum.