140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[19:25]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það eru áhöld um hver niðurstaðan verður í þessu efni og sjálfur er ég sannfærður um að kostnaðurinn mun að verulegu leyti falla á ríkissjóð. Ef svo er þá á þessi framkvæmd eins og aðrar að fara inn í samgönguáætlun. Rétt skal vera rétt, við höfum verið minnt á það í umræðum í þinginu undanfara daga og uppi í Þjóðmenningarhúsi og við eigum að fara rétt með staðreyndir. Ég hef ákveðnar efasemdir um að verið sé að gera það í þessu máli.