140. löggjafarþing — 87. fundur,  24. apr. 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[19:25]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hæstv. ráðherra þegar hann talar um að rétt skuli vera rétt. Við höfum undirbyggt þessa framkvæmd með nákvæmum greiningum, bæði frá IFS Greiningu og eins frá Ríkisábyrgðasjóði og fleiri virtum stofnunum í samfélaginu. Við þekkjum áhættuþættina. Við viðurkennum að verkefnið er ekki áhættulaust en drögum fram gild rök fyrir því að það sé áhættunnar virði.