Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 88. fundur,  25. apr. 2012.

lögreglulög.

739. mál
[16:30]
Hlusta - Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessar spurningar og vil reyndar geta þess að í lokaræðu minni mun ég víkja lítillega að lífeyrismálum sem tengdust fyrra frumvarpi sem lá síðast fyrir þinginu haustið 2010. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að nú er gert ráð fyrir átta umdæmum í stað sex eins og lagt var til í því frumvarpi sem lá fyrir á sínum tíma. Þetta er gert með hliðsjón af ábendingum og aðfinnslum sem fram komu á sínum tíma frá sveitarstjórnum, lögreglunni og víðar. Þetta frumvarp er unnið í góðu samstarfi við lögreglustjóra og síðan einnig við sýslumenn, en nú á eftir mun ég tala fyrir frumvarpi um breytingu á lögum sem snúa að sýslumönnum.

Auðvitað er ekki allir á eitt sáttir um þetta. Sumir telja að umdæmin eigi að vera með öðrum hætti en hér er lagt til, en þó held ég að óhætt sé að segja að um þessa skipan sé breið samstaða. Hún er ekki algild og ekki eintóna, en það er breið samstaða um þessar breytingar, hygg ég, sem ég er sannfærður um að komi til með að styrkja lögregluna í heild sinni.

Varðandi ríkislögreglustjóra og þá áherslu sem áður var, að færa verkefni til einstakra lögregluumdæma frá embætti ríkislögreglustjóra, hef ég horfið frá þeirri áherslu. Það geri ég einnig með hliðsjón af reynslu og með hliðsjón af óskum frá einstökum lögregluembættum. Þarna eru líka mismunandi áherslur að sjálfsögðu og mismunandi sjónarmið uppi, en ég tel að við séum hér aftur inni á braut sem bærileg samstaða ríkir um.

Næsta ræða