störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það er auðvitað með ólíkindum ef það er hin nýja lýðræðishefð að beita klækjabrögðum við að taka mál út úr nefndum, ef það er satt sem hér hefur heyrst að hafi gerst í morgunsárið. En það er svo sem ekki nýtt.
Það hefur komið mér á óvart á undanförnum dögum hvað stjórnarliðar hafa verið að þakka sér ýmislegt og kenna okkur í minni hlutanum um ýmsar ófarir stjórnarsinna og ríkisstjórnarinnar um hversu hægt gangi. En það kom mér reyndar verulega á óvart að meiri hlutinn sé farinn að þakka sér að biskupskjör í þjóðkirkjunni hafi farið á þann ágæta veg að við höfum fengið glæsilegan biskup og ég óska þjóðinni til hamingju með það. Ég hef ekki séð stjórnarflokkana berjast svo hart fyrir hagsmunum þjóðkirkjunnar að það kemur mér á óvart að þeir hafi svona víðtæk völd inn í þjóðkirkjuna.
Ég kom hér upp og ætlaði að vekja athygli á stöðu umræðu um sjávarútvegsmál í atvinnuveganefnd. Það er búið að skila allmörgum umsögnum og reyndar allar komnar sem um var beðið. Þær eru því marki brenndar, allar nánast, að vera mjög neikvæðar í garð frumvarpanna sem komið hafa og þeir gestir sem hafa komið fyrir nefndina frá því um páska hafa talað um að ef ekki verði horfið af þessari braut verði greininni gersamlega rústað, það verður að segjast eins og er. Talað er um fjöldagjaldþrot, uppsagnir, og að Landsbankinn þurfi að afskrifa kannski tvöfalda þá upphæð sem ríkissjóður telur sig geta fengið í veiðileyfagjöld. ASÍ var síðast hjá okkur í morgun og það er ánægjulegt að segja þingheimi frá því að stefna ASÍ er orðin mun líkari stefnu Framsóknarflokksins og gagnrýndi harðlega stefnu ríkisstjórnarinnar, bæði frumvörpin sem þar komu fram, (Forseti hringir.) en tíminn leyfir mér ekki að fara betur í það, frú forseti.