Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[14:21]
Hlusta - Horfa

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil fyrst leiðrétta hv. þingmann í því að sú stefna þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að sækja um aðild að Evrópusambandinu og sú umsókn sem er í gangi núna er ekki samkvæmt stefnu VG. Hitt er rétt að það var áréttað í landsfundarsamþykkt að kæmi til slíkrar umsóknar og samningur kæmi yrði hann borinn undir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég talaði gegn því að Vinstri hreyfingin – grænt framboð beitti sér fyrir því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það má vel vera að hv. þm. Árni Þór Sigurðsson hafi talað fyrir því að sækja um aðild en stefna flokksins var að gera það ekki og ég tel þetta brot á henni.

Ég ætla síðan að spyrja hv. þingmann. Nú liggja fyrir samningsdrög í kafla 29 og 30. Þar eru ekki settar þær varnarlínur sem Bændasamtökin hafa sett, t.d. varðandi heimild til að leggja tolla á innfluttar búvörur, (Forseti hringir.) þ.e. bannað er að flytja inn lifandi dýr, hrátt og ófrosið kjöt og aðrar dýraafurðir, sem er jú einn af hornsteinum okkar og hefur verið liður í baráttunni (Forseti hringir.) til að vernda innlenda hagsmuni í þessum efnum. Það eru ekki settir neinir varnaglar í samningsdrögunum sem nú liggja fyrir. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann, herra forseti, um þetta mál.

Næsta ræða